Vagninn Cabins
Níu litrík hús Vagninn Cabins í röð undir fjöllum Önundarfjarðar á FlateyriLitrík hús á túninu og Þorfinnur í baksýnKvöldsól yfir húsunum og fjöllum ÖnundarfjarðarNorðurljós yfir Vagninn Cabins að nóttuFjöllin speglast í lygnum ÖnundarfirðiNorðurljós yfir húsi og fjöllum ÖnundarfjarðarStofa með tveimur bláum sófum og stórum gluggum út að firðinum

Flateyri · Önundarfjörður · Vestfirðir

Komdu vestur. Vertu aðeins lengur.

Níu rúmgóð hús við fjörðinn, með þremur svefnherbergjum, eigin eldhúsi og fjöllin beint fyrir utan gluggann.

9hús

66°03′ N · 23°31′ WÖnundarfjörður, VestfirðirStaðartími á Flateyri

Níu hús við fjörðinn

Það er eitthvað við Flateyri sem fær mann til að hægja á sér

Fjöllin standa nærri, fjörðurinn er alltaf í seilingarfjarlægð og dagurinn fær að ráðast af birtunni, veðrinu og því sem þig langar að gera.

Hjá Vagninn Cabins færðu þitt eigið hús og gott rými til að vera saman. Þar er gott að elda saman, koma sér vel fyrir eftir daginn og vakna svo til nýs vestfirsks ævintýris.

Og þegar kvöldar er Vagninn, veitinga- og tónleikastaður þorpsins, aðeins í stuttu göngufæri.

Litrík hús á túninu og Þorfinnur í baksýnBorðstofuborð fyrir sex við gluggann með útsýni yfir fjörðinn
  • 9hús við Melagötu
  • 67m²rými í hverju húsi
  • 3svefnherbergi í hverju húsi
  • 5gestir í hverju húsi

Níu hús, níu litir

Hvert hús hefur sinn eigin lit

Öll húsin eru með sama góða grunnbúnað: 67 m², þrjú svefnherbergi og pláss fyrir allt að fimm gesti.

Strjúktu til að sjá þau öll

  • Gult hús með timburpalli

    Gult01

  • Ljósgrænt hús með timburpalli

    Ljósgrænt02

  • Appelsínugult hús með timburpalli

    Appelsínugult03

  • Grátt hús með timburpalli

    Grátt04

  • Plómulitað hús með timburpalli

    Plómulitað05

  • Blátt hús með timburpalli

    Blátt06

  • Rautt hús með timburpalli

    Rautt07

  • Grænt hús með timburpalli

    Grænt08

  • Brúnt hús með timburpalli

    Brúnt09

Húsin

Þitt eigið hús á Flateyri

Notalegt og rúmgott 67 m² hús fyrir allt að fimm gesti í þremur svefnherbergjum. Í húsinu er björt stofa, matar- og setuaðstaða og vel búið eldhús. Wi-Fi og hiti eru innifalin, svo dvölin er þægileg á öllum árstímum.

Sundlaugin í þorpinu, hið notalega Bryggjukaffi, Vagninn og Kaupmannsbúðin, sjálfsafgreiðsluverslun sem er opin allan sólarhringinn, eru öll í stuttu göngufæri.

  • Rými til að vera saman

    Stofa, eldhús og notaleg matar- og setuaðstaða skapa góðan stað fyrir sameiginlegar máltíðir og róleg kvöld.

  • Þrjú svefnherbergi

    Fimm rúm í þremur herbergjum gefa fjölskyldum og vinahópum meira næði en hefðbundið hótelherbergi.

  • Þitt eigið eldhús

    Eldið morgunmatinn hægt, útbúið nesti fyrir daginn eða komið saman yfir góðum kvöldverði.

  • Vestfirðir við dyrnar

    Fjöll, fjörður, þorpslíf og útivist eru allt í kring, án þess að þurfa að flýta sér.

Í hverju húsi

  • Allt að 5 gestir
  • 5 rúm í þremur svefnherbergjum
  • Stofa og borðstofa
  • Vel búið eldhús
  • Baðherbergi með sturtu
  • Ókeypis Wi-Fi
  • Hiti innifalinn
  • Snjallsjónvarp
  • Rúmföt og handklæði
  • Sérinngangur
  • Bílastæði við húsið
  • Möguleiki á aukarúmi samkvæmt beiðni

Skipuleggðu dvölina

Innritun
16:00
Útritun
11:00

Öll húsin eru með sama góða grunnbúnað og rúma 5 gesti.

Athuga framboð

Flateyri

Lítið þorp, stór upplifun

Flateyri er lítið sjávarþorp í Önundarfirði, umlukið fjöllum og sjó. Hér er stutt á milli hafnar, sundlaugar og mannlífsins í þorpinu, en samt nóg rými til að finna kyrrðina.

Loftmynd af Flateyri á mjórri eyrinni í Önundarfirði
Á mjórri eyri, á milli brattra fjalla og fjarðar sem tekur sífellt á sig nýja mynd.

Smelltu á stað á kortinu

Húsaröðin við Melagötu og Flateyrarkirkja í fjarska

Vagninn Cabins

Húsin okkar níu við Melagötu, í stuttu göngufæri frá höfninni, sundlauginni og Vagninum.

Vagninn, veitinga- og tónleikastaður á Flateyri

Vagninn

Veitinga- og tónleikastaður þorpsins, með góðum mat, tónleikum, plötusnúðakvöldum og spurningakeppnum allt árið.

Bryggjukaffi við höfnina

Bryggjukaffi

Fáðu þér kaffi við höfnina á hinu notalega Bryggjukaffi.

Sundlaugin á Flateyri

Sundlaugin

Opin allt árið, með innilaug, sánu og heitum pottum. Tilvalið eftir dag úti í náttúrunni.

Fiskibátar speglast í lygnri höfninni á Flateyri

Höfnin

Fiskibátarnir setja enn svip sinn á höfnina og daglegt líf í þorpinu.

Göngufólk í hvíld í grænni hlíð í Önundarfirði

Þorfinnur

Helsta kennileiti Önundarfjarðar. Brött gangan upp á fjallið launar vönu göngufólki með víðáttumiklu útsýni.

Tankurinn á Sólbakka, sem hýsir list á ListaVestrinu

Tankurinn

Á sumrin færir listahátíðin list inn í óvænt rými víða um þorpið, eins og Tankinn á Sólbakka.

  • Gullin birta á fjöllunum handan fjarðar

    Sumar á Flateyri

    Langir, bjartir dagar undir miðnætursól, fjallgöngur, gullnar fjörur og róleg kvöld við fjörðinn.

  • Snævi þakin fjöll og skíðaspor við Ísafjörð

    Haust og vetur

    Þegar fjöllin hvítna verður kyrrðin enn meiri og birtan breytir firðinum frá einni stund til annarrar.

  • Lág kvöldsól yfir húsunum á Flateyri

    Fjölskyldur og vinir

    Þrjú svefnherbergi og sameiginlegt rými, með plássi til að vera saman og næði fyrir alla.

  • Fjöllin speglast í lygnum Önundarfirði

    Fyrir útivistarfólk

    Róleg bækistöð fyrir þá sem vilja ganga, hjóla, róa, synda, skíða eða kanna firðina í nágrenninu.

Samvera við langborð við gömlu slökkvistöðina á Flateyri

Hópar og viðburðir

Komið saman á Flateyri

Flateyri er góður staður til að koma saman.

Fyrir stærri hópa getum við, í samstarfi við Vagninn, boðið upp á mat og aðstöðu fyrir sameiginlegar máltíðir, samveru og viðburði.

Við aðstoðum einnig við að finna og bóka önnur rými á Flateyri og í nágrenninu sem henta hópnum og tilefninu. Þannig verður meira svigrúm til að njóta stundanna saman.

Um okkur

Sex manns, þrjú pör, sameiginleg ást á Flateyri

Við erum sex manna hópur með bakgrunn í kvikmyndum, íþróttum, ferðaþjónustu, viðskiptum og viðburðahaldi. Það sem sameinar okkur er ástin á Flateyri.

Eigendurnir sex fagna fyrir framan húsin

Nokkur okkar hafa átt og rekið Vagninn frá árinu 2017. Á tónleikum, við matarborðin og á viðburðum í þorpinu sáum við sama mynstrið aftur og aftur: fólk naut þess að koma til Flateyrar en gistimöguleikarnir voru of fáir. Húsin níu við Melagötu voru það sem vantaði.

Með Vagninn Cabins viljum við bjóða upp á meira en gistingu: svigrúm og tíma til að kynnast Flateyri almennilega og dvelja kannski einum degi lengur en áætlað var.

Hvar erum við

Melagata, Flateyri

Í hjarta Vestfjarða, á mjórri eyri í Önundarfirði.

Heimilisfang
Melagata 1-9, 425 Flateyri, Ísland
Innritun / útritun
16:00 / 11:00

Gott að vita

Spurningar og svör

Allt sem gott er að vita áður en þú kemur vestur.

Ertu með aðra spurningu?

Hversu margir gestir geta gist í hverju húsi?

Hvert hús rúmar allt að fimm gesti, með fimm rúm í þremur svefnherbergjum. Hægt er að óska eftir aukarúmi.

Hvað er innifalið í hverju húsi?

Í hverju húsi er stofa og borðstofa, vel búið eldhús, baðherbergi með sturtu, ókeypis Wi-Fi, hiti, snjallsjónvarp, rúmföt og handklæði, sérinngangur og bílastæði við húsið.

Hvenær er innritun og útritun?

Innritun er frá kl. 16:00 og útritun fyrir kl. 11:00.

Hvar eru húsin?

Húsin eru við Melagötu 1-9 á Flateyri, litlu sjávarþorpi á mjórri eyri í Önundarfirði á Vestfjörðum. Höfnin, sundlaugin og Vagninn eru öll í stuttu göngufæri.

Er hægt að gista að vetri til?

Já. Húsin eru upphituð og þægileg á öllum árstímum. Á veturna er hægt að fara á skíði í Tungudal og Seljalandsdal við Ísafjörð, og sundlaugin í þorpinu, með sánu og heitum pottum, er opin allt árið.

Hvað er hægt að gera í nágrenninu?

Slakaðu á í sundlauginni, kíktu á Bryggjukaffi og í Gömlu bókabúðina, njóttu matar og lifandi tónlistar á Vagninum, gakktu um Holtsfjöru eða farðu upp á Þorfinn. Kaupmannsbúðin, sjálfsafgreiðsluverslun sem er opin allan sólarhringinn, er í göngufæri.

Takið þið á móti hópum og viðburðum?

Já. Í samstarfi við Vagninn getum við boðið upp á mat og aðstöðu fyrir sameiginlegar máltíðir, samveru og viðburði, og aðstoðað við að finna önnur rými í nágrenninu. Sendu okkur hópfyrirspurn í tölvupósti.

Hvernig bóka ég?

Notaðu hnappinn Bóka dvöl til að athuga framboð, eða hafðu samband í tölvupósti eða síma, sjá Hvar erum við hér fyrir ofan.

Kvöldsól yfir húsunum og fjöllum Önundarfjarðar

Vestfirðirnir bíða

Fjöllin, fjörðurinn og húsið þitt á Flateyri eru aðeins nokkrum smellum frá.

Bóka dvöl